Leikmaður í kvennaliði Fylkis fékk staðfest smit af COVID-19 greint í dag. Þetta fékk 433.is staðfest úr herbúðum Fylkis fyrir stundu.
Umræddur leikmaður var gestur í útskriftarveislu fyrir rúmri viku en frá þeirri veislu hafa nú fjögur smit greinst. Fyrst greindist leikmaður kvennaliðs Breiðabliks um miðja vikuna.
Leikmaður í meistaraflokki karla Stjörnunnar greindist svo með smit á föstudag en hann var einnig gestur í sömu veislu.
Allt kvennalið Fylkis er nú farið í sóttkví vegna málsins og er smitrakning í gangi. Fylkir mætti Þrótti á þriðjudag og var umræddur leikmaður í hópi liðsins þann dag.
Uggur er í knattspyrnuheiminum en Fylkir er þriðja liðið í efstu deild kvenna sem fer í sóttkví, áður höfðu Breiðablik og KR verið send í tveggja vikna sóttkví vegna smits hjá leikmanni Breiðabliks. Karlalið Stjörnunnar er eina liðið sem er í sóttkví.
Þá eru leikmenn í HK og fleiri liðum í sóttkví eftir að hafa átt samskipti við smitaðan einstakling.
Fjögur staðfest smit tengjast nú þessari útskriftarveislu en starfsmaður atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins greindist með veiruna.