Manchester United mun taka á móti Chelsea í undanúrslitum FA bikarsins en dregið var í kvöld.
United lagði Norwich í framlengingu í 8-liða úrslitunum í gær og vann Chelsea lið Leicester 1-0 í dag.
Arsenal fær líklega erfitt verkefni á sama tíma en liðið er einnig komið í undanúrslitin.
Manchester City er líklegur andstæðingur Arsenal en liðið spilar nú við Newcastle.
Staðan er 1-0 fyrir City þessa stundina þegar 60 mínútur eru liðnar af leiknum.