Páll Kristjánsson formaður KR hefur staðfest að leikmenn liðsins hafi ekki fengið greidd laun síðustu mánuði en að þeir fái borgað um næstu mánaðamót. KR réðst í nokkuð drastískar aðgerðir vegna kórónuveirunnar og samdi félagið við leikmenn um að gefa eftir laun á meðan veiran hefði áhrif á fjárhag félagsins.
Kristján Óli Sigurðsson greindi frá málinu í Dr. Football í dag. „Frá 15 mars hefur ekkert verið greitt. Menn beðnir um að afskrifa, ég er með skjáskot af tölvupósti til leikmanns.“
Meira:
Kristján segir stöðuna svarta í Vesturbæ – „Frá 15 mars hefur ekkert verið greitt“
Páll segir að endursamið hafi verið við leikmenn. „Við sömdum við leikmenn upp á nýtt þegar þetta var fyrirsjáanlegt. Við sömdum við alla leikmenn og tókumst á við einstakar aðstæður með afdrifaríkum hætti. Við greiðum öll laun næstu mánaðamót,“ sagði Páll í samtali við DV í dag.
Páll segir KR ekki skulda neinum enda hafi verið samið um að gefa eftir laun. „Við erum ekki í skuld við neinn leikmann. Við settumst niður með hverjum og einum og sömdum um þetta.“
„Við stöndum við þá samninga sem við gerum og borgum laun næstu mánaðamót.“
Páll segir KR ekki vera að skoða að fá inn leikmann. „Fótboltalið er lifandi heimur, við erum með fínt lið og erum ekki líklegir til að bæta við leikmönnum.“
Kristján Óli hefur birt bréfið sem KR sendi á leikmenn.
Enn ein skýrslan frá Höfðingjanum. Læt mynd fylgja.https://t.co/YdpiTk8SBi pic.twitter.com/WuEMf7jFH4
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) June 26, 2020