Það er búið að staðfesta það að Ísland og Rúmenía munu leika á Laugardalsvelli í október.
Þetta var ákveðið á fundi UEFA í dag en Ísland og Rúmenía eigast við í umspilsleik um sæti á EM 2020 (2021).
Nákvæm dagsetning er ekki gefin upp að svo stöddu en úrslitaleikurinn sjálfur fer fram í nóvember.
Umspilið átti að fara fram í mars en vegna COVID-19 þá var augljóslega ekki hæggt að spila.
Ef Ísland vinnur Rúmeníu mun liðið spila við annað hvort Búlgaríu eða Ungverjaland í úrslitum.