Botnlaus taprekstur Fjölnis í Grafarvogi heldur áfram en félagið í heild tapaði 22 milljónum á síðasta ári. Fréttablaðið fjallaði um málið í síðustu viku og vitnaði í ársskýrslu félagsins. Fjölnir hefur verið rekið með 53 milljóna króna tapi síðustu þrjú ár
Jón Karl Ólafsson, formaður félagsins er opinskár með það að það þurfi að breyta því hvernig rekstur íþróttafélaga er. Flest íþróttafélög berjast nú í bökkum við að halda lífi í rekstrinum, launalækkanir hafa verið hjá flestum félögum eða endursamið við leikmenn.
Jón Karl kveðst hafa reynt að taka samtalið við forráðamenn félaga en það hafa illa gengið. „Þegar á hólminn er komið þá skiptir máli hvort búningurinn er grænn eða brúnn eða blár eða hvítur eða hvernig sem er. Það virðist keyra menn inn í samtalið þannig okkur hefur gengið illa að fá formenn til að setjast niður,“ segir Jón Karl í samtali við Fréttablaðið.
Jón Karl segir stöðuna verri en menn láta líta út fyrir að vera. „Ég veit að það er hart í ári hjá mörgum og verri en mörg lið láta uppi. Sum félög, sem er gott og blessað, eru að taka leikmenn inn og setja á launaskrá hjá fyrirtækjum í sínum bæjarfélögum. Það skekkir myndina. Auðvitað þurfum við að mynda okkur stóra skoðun hvernig rekstrareiningin íþróttafélag á að reka sig. Ég vil gera það fyrir opnum dyrum. En það er erfitt að segja söguna án þess að vera með allar tölur.“
Hann segir erfitt að eiga samræður þar sem ÍSÍ, UMFÍ, héraðssambönd komi að máli og erfitt sé að átta sig á hvert á að leita.