Sara Björk Gunnarsdóttir miðjumaður Wolfsburg er á förum frá félaginu í sumar og stærstu félög Evrópu reyna nú að sannfæra hana.
Lyon í Frakklandi er besta kvennalið í heimi og hefur Sara verið sterklega orðuð við félagið.
Nú segir svo Marca á Spáni frá því að Barcelona sé á eftir Söru og hún er stolt af því að stórlið vilji fá sig. „Ég hef fengið nokkur tilboð og hef tekið ákvörðun,“ sagði Sara.
„Barcelona er stærsta félag heims og hefur kvennalið þeirra verið í sókn, það er heiður að vera orðuð við besta lið Spánar. Deildin á Spáni hefur verið á uppleið.“
Það er því ljóst að Sara hefur úr mörgum tilboðum að velja en hún er landsliðsfyrirliði Íslands.