Adrien Rabiot, leikmaður Juventus neitar að mæta til æfinga eftir að laun hans voru lækkuð. Laun Rabiot voru lækkuð vegna kórónuveirunnar.
Rabiot og allir aðrir leikmenn félagsins voru lækkaðir í launum en laun Rabiot voru lækkuð um 7 milljónir punda yfir árið.
Franski miðjumaðurinn sættir sig ekki við það og ætlar ekki að mæta til æfinga samkvæmt fréttum.
Æfingar eru farnar af stað með takmörkunum en vonir standa til um að Seria A geti farið af stað í sumar.
Rabiot er svo í dag orðaður við Everton en Carlo Ancelotti er sagður vilja fá Rabiot á miðsvæði sitt. Miðjumaðurinn hefur ekki fundið taktinn á Ítalíu og gæti fengið vel borgað í Guttagarði.