Það kom mörgum á óvart þegar Herði Magnússyni, íþróttafréttamanni á Stöð2 var vikið úr starfi síðasta haust. Eftir 19 ár í starfi fékk Hörður uppsagnarbréf, þessi vinsæli íþróttafréttamaður ræddi málið við hlaðvarpsþáttinn, Spekingar spjalla á dögunum.
,,Hann tók þrjár mínútur eftir tæp tuttugu ár,“ sagði Hörður við þáttinn, þegar hann rifjaði upp brottrekstur sinn frá síðasta hausti. ,,Ég er ekki rétti maðurinn til að svara því. Ég hef skoðun á því, mér þykir vænt um mjög marga á Stöð2. Vinnufélagar sem hafa verið með mér í mörg ár, aðrir skemur.“
Hörður var með mikla ástríðu í starfi og hann átti ekki von á því að fá uppsagnarbréfið í hendurnar. ,,Söknuðurinn er af vináttu, skilur á milli vinnufélaga og vina. Það hefur margt gerst, eins og ég sagði við þann sem fékk það hlutverk að koma með starfslokasamninginn. Á dauða mínum átti ég frekar von á.“
Margir sakna þess og hann á eftir að sakna starfsins, hann hafði stýrt Pepsi Max-mörkunum sem var stundum kallað flaggskip stöðvarinnar. ,,Ég á eftir að sakna þess. Sérstaklega þegar Íslandsmótið byrjar, að vera ekki með í fyrsta sinn síðan 1985 þegar ég spilaði minn fyrsta leik í efstu deild. Þegar ég hætti þá tók þetta starf við.“
,,Auðvitað hefur allt sinn tíma, þú ert ekki eilífur og það eru ekki mörg svona störf hér. Við búum ekki í margmennu landi, möguleikarnir eru takmarkaðir. Þetta er ný staða sem var sett upp, maður verður að vinna sig út úr henni og með hvaða hætti. Það getur vel verið að það verði í gegnum fjölmiðla eða eitthvað allt annað.“