Íslensku landsliðin í knattspyrnu hafa eignast nýja stuðningsmenn en um er að ræða krakkahóp í Eþíópíu.
Systkinin á einu heimilinu í SOS barnaþorpinu í Addis Ababa voru í skýjunum þegar fulltrúi SOS á Íslandi afhenti þeim að gjöf íslensku landsliðstreyjuna í vettfangsferð þangað í lok febrúar. KSÍ gaf treyjurnar.
Starfsfólk barnaþorpsins sagði að það sem gladdi börnin sérstaklega er hversu litrík og falleg treyjan er og að hún væri glæný og ekta.
Hér að neðan má sjá börnin afar ánægð með íslenska búninginn.