fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Skandall í íslenskri kosningu – Plottið hjá stelpunum gekk upp

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 15. apríl 2020 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tímavélin:

Það varð allt vitlaust í íslenskum fótbolta haustið 2007 þegar Margrét Lára Viðarsdóttir var ekki kjörinn besti leikmaður ársins. Andstæðingar hennar í deildinni þoldu ekki yfirburði Margrétar og rottuðu sig saman, þær ákváðu í sameiningu og völdu hana ekki sem leikmann ársins.

Margrét hafði átt magnað sumar, skorað 38 mörk í 16 leikjum og var þar að setja markamet. Leikmenn deildarinnar virtust ekki þola hversu öflug Margrét var og úr varð algjört bíó á lokahófi KSÍ.

Frétt Fótbolta.net árið 2007:
Nú er ljóst að leiðindamál hefur komið upp í vali á leikmanni ársins í Landsbankadeild kvenna þar sem gengið var framhjá besta leikmanni Íslandsmótsins, Margréti Láru Viðarsdóttur og Hólmfríður Magnúsdóttir valin besti leikmaðurinn.

Það eru leikmenn liðanna í Landsbankadeildinni sem velja besta leikmanninn og fá sendan atkvæðaseðil frá KSÍ. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net gengu skilaboð milli leikmanna liðanna í Landsbankadeildinni þess efnis að velja ekki Margréti Láru Viðarsdóttur besta leikmanninn í Landsbankadeild kvenna. Umræða um þetta mál fór fram í útvarpsþætti Valtýs Björns Valtýssonar, Mín Skoðun, á Xinu 977 fyrir nokkrum vikum síðan en þá trúði enginn að þetta yrði staðreyndin á lokahófinu í kvöld.

Nú er orðið ljóst að þau skilaboð hafa borið tilætlaðan árangur og Hólmfríður Magnúsdóttir hampaði verðlaunum fyrir að vera besti leikmaður deildarinnar.

Margrét Lára Viðarsdóttir bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn í Landsbankadeild kvenna í sumar og undir eðlilegum kringumstæðum hefði hún verið valin besti leikmaðurinn. Hún skoraði 38 mörk í 16 leikjum og setti þar með markamet í efstu deild kvenna frá upphafi, bætti met sitt frá síðasta ári.

Nú má ekki draga úr góðri frammistöðu Hólmfríðar Magnúsdóttur sem skoraði 15 mörk í 13 leikjum en þó er alveg ljóst að frammistaða Margrétar Láru var betri í sumar og er það samdóma álit flestra sem fylgjast með íslenskri knattspyrnu. Hólmfríður var ekki valin besti leikmaður KR á lokahófi félagisins í haust heldur Olga Færseth.

Lestu frétt Fótbolta.net hérna.

Besta knattspyrnukona í sögu Íslands:

Margrét lét þessi leiðindi ekkiá sig fá og hélt áfram að skara fram úr í íslensku íþróttalífi, hún er að margra mati besta knattspyrnukona sem Ísland hefur átt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Í gær

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls