Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United vonast til þess að kærustur leikmanna geti hjálpð þeim á skrýtnum tímum. Leikmenn félagsins eins og aðrir æfa nú aðeins heima hjá sér.
Flestir leikmenn United búa í stóru húsnæði og hafa góðan garð til að æfa sig í fótbolta.
,,Leikmenn fá áætlun heim til sín, þeir eiga að vera á ákveðnu mataræði. Þeir eiga að æfa vel,“ sagði Solskjær.
,,Ég hef verið í garðinum með krökkunum, þar æfum við okkur að klára færin. Leikmenn geta það líka.“
,,Flestir leikmenn hafa góða aðstöðu og góðan garð, þeir geta vonandi fengið kærustuna eða eiginkonu til þess að senda á þá eða gefa fyrirgjafir.“