Það voru líflegar umræður á Sky Sports, sjónvarpsstöðinni í vikunni þegar þeir Alan Smith, Graeme Souness og Jamie Redknapp hittust í hlaðvarpsþætti vegna útgöngubanns í Bretlandi. Þar voru þeir félagar að ræða um leikmenn sem hefðu getað náð lengra og Alan Smith fyrrum framherji Arsenal, ræddi þá um Sigurð Jónsson. Skagamaðurinn lék með Arsenal en náði ekki að slá í gegn þar.
Sigurður lék með Arsenal frá 1989 til 1991 en þegar umræðan hjá Smith fór fram, minntist hann á annað atvik. Smith taldi að Sigurður hefði getað náð lengra.
„Sigurður Jónsson kom upp í hugann á mér. Souness, þú fótbraust hann í leik við Ísland og manst örugglega eftir honum,“ sagði Smith á Sky.
Um var að ræða atvik í leik Íslands og Skotlands á Laugardalsvellinum árið 1985. Brot Souness var mjög ljótt og var atvikið mikið rætt eftir það.
„Hann var miðjumaður sem kom frá Sheffield. Hann var góður á boltanum og fékk boltann frá hafsentum. Hann var mjög öflugur en bakmeiðsli léku hann grátt. Sökum þess hætti hann.“
Ensk blöð höfðu mikinn áhuga á fótbroti Sigurðar og buðu honum meðal annars fjármuni til að ræða það, Souness var skaphundur sem var fastur fyrrir innan vallar. Hér að neðan má sjá umfjöllun Morgunblaðsins frá þeim tíma.