fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Mömmustrákurinn Ronaldo: Kaupir dýr hús og dýra bíla fyrir hana – Ræða ástarmálin opinskátt

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 4. mars 2020 11:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dolores Aveiro, móðir Cristiano Ronaldo var flutt á sjúkrahús eftir að hafa fengið heilablóðfall í fyrrinótt.

Dolores er nú á sjúkrahúsi í Madeira þar sem hún býr, hún fékk blóðtappa í heila en er ekki sögð í lífshættu.

Neyðarlínan í Madeira fékk símtal um 05:00 vegna Dolores og var hún flutt með hraði á sjúkrahús. Hún fer í ítarlegar rannsóknir í dag. Dolores hefur áður barist fyrir lífi sínu en hún hefur fengið krabbamein í bæði brjóstin

,,Takk fyrir stuðninginn vegna mömmu, líðan hann er stöðug og hún er að jafna sig á spítalanum. Ég og fjölskylda mín viljum þakka læknateyminu sem sér um hana, við biðjum líka um frið frá fjölmiðlum á þessari stundu,“ sagði Ronaldo.

Einstakt samband

Samband Ronaldo og Dolores er eins og best verður á kosið, þau eru afar náinn og ræða öll mál. Dolores er 65 ára gömul en Ronaldo er eins og sagt er, mömmustrákur. Hún hefur hjálpað honum mikið á lífsleiðinni og hjálpað mikið við uppeldið á börnunum sem hann á.

,,Ég ólst upp við það að eiga ekkert, við vorum fátæk. Ég átti enginn leikföng og fékk aldrei jólagjafir,“ sagði Ronaldo um æsku sína, faðir hans var drykkfelldur og tók engan þátt í neinu. Hann lést þegar Ronaldo lék með Manchester United.

Faðir Ronaldo kom lítið að uppeldinu, hann var alkóhólisti

,,Fyrir okkur var þetta eðlilegt, þetta var það eina sem við þekktum. Það voru allir eins í kringum okkar en það var mikil lífsgleði.“

Árið 2009 sigraði Dolores sína fyrstu baráttu við krabbamein, eftir sigurinn þá færði Ronaldo spítalanum um 16 milljónir til að byggja upp aðstöðu fyrir þá sem berjast við krabbamein. ,,Cristiano er endalaust þakklátur þeim læknum sem hafa hjálpað mömmu sinni,“ sagði vinur fjölskyldunnar.

Borgar allt fyrir mömmu:

Ronaldo hefur þénað ótrúlega á ferli sínum og hefur mamma hans notið góðs af því, hann keypti 320 milljóna hús fyrir hana í Madríd þegar hann gekk í raðir Real Madrid árið 2009. Þannig gott Dolores verið nálægt honum.

Hann hefur keypt fyrr hana hús í Portúgal og þá er hann sagður fljúga henni út um allt í einkaflugvél. Oftar en ekki hefur Dolores tekið vini sína með í sumarfrí, Ronaldo borgar þá einkaflugvél undir alla.

Þegar Dolores varð sextug þá færði Ronaldo henni Porsche bíl fyrir 16 milljónir og á dögunum færði hann henni Ferrari sem kostaði 40 milljónir.

Þá hefur hún skipt sér mikið af þeim konum sem Ronaldo hefur verið að hitta og alltaf þurft að samþykkja þær áður en gengið er lengra, hún er sögð afar sátt með Georgina sem Ronaldo á eitt barn með en hann hafði sjálfur eignast þrjú með staðgöngumóðir

Ein af ástæðum þess að Ronaldo var sagður slíta sambandi við fyrirsætuna, Irina Shayk var að henni og Dolores kom ekki vel saman, hann lét Ronaldo einnig slíta sambandi við sjónvarpskonu í Portúgal, sem henni þótti of gömul. Ronaldo var þá 21 árs en sjónvarpskonan 16 árum eldri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Beitir Ólafsson úr KR í HK

Beitir Ólafsson úr KR í HK
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar
433Sport
Í gær

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði