fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Kemur í ljós á morgun hvort landsleikurinn mikilvægi verði í júní

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 31. mars 2020 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mótanefnd KSÍ sendi í gær (30. mars) tölvupóst til aðildarfélaga KSÍ til upplýsingar um stöðu mála varðandi upphaf knattspyrnumótanna 2020.

Erindi mótanefndar KSÍ til aðildarfélaga:
„Eins og fram kom í skilaboðum sem við sendum frá okkur 20. mars sl. þá reynum við að halda ykkur (aðildarfélögum KSÍ) upplýstum um stöðu mála varðandi upphaf knattspyrnumótanna 2020.

Þar sem enn ríkir mikil óvissa með framhaldið á samkomubanninu er ekki hægt að gefa út nákvæma dagsetningu á því hvenær keppni hefst í einstökum mótum. KSÍ reynir að undirbúa sig eins vel og mögulegt er til að vera sem best tilbúið þegar íslensk yfirvöld heimila keppni að nýju.

UEFA fundar nk. miðvikudag. Vonandi skýrist þá hvort landsleikir fari fram í júní eða ekki og hvort Evrópukeppnir íslenskra félagsliða hefjist 7. júlí líkt og áformað var. Mótanefnd KSÍ fundar í vikunni til að fara yfir stöðu mála og mun meta framhaldið í ljósi væntanlegra upplýsinga frá UEFA.

Við biðjum félög um að senda okkur upplýsingar um breyttar forsendur sem hafa áhrif á framhald mótanna. Hér er t.d. átt við breyttar skráningar, utanferðir yngri flokka, opin mót og aðra viðburði sem áður hafði verið tilkynnt um til KSÍ og hafa breyst.

Meðan þetta ástand varir biðjum við ykkur um að fara varlega og fylgja leiðbeiningum yfirvalda vegna COVID-19.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum