Antoine Griezmann, leikmaður Barcelona, stefnir á að fá treyju númer sjö hjá félaginu.
Það er númerið sem Griezmann klæddist hjá Atletico Madrid áður en hann skipti síðasta sumar.
Sjöan er í eigu Philippe Coutinho þessa stundina en hann er í láni hjá Bayern Munchen.
,,Ég væri til í að fá treyju númer sjö aftur. Einangrunin gengur vel en það er ekki hægt að gera neitt,“ sagði Griezmann.
,,Ég sakna fótboltans gríðarlega. Ég veit ekki hvenær keppnin snýr aftur; ég veit ekki hvenær ég má æfa á ný.“