Axel Sigurðarson hefur skrifað undir samning við Gróttu í Pepsi Max-deild karla.
Þetta staðfesti félagið í kvöld en Axel gerir tveggja ára samning við nýliðana. Hann kemur til liðsins frá KR.
Hann var lánaður til Gróttu í Inkasso-deildinni í fyrra og hjálpaði liðinu að komast upp.
Tilkynning Gróttu:
Sóknarmaðurinn Axel Sigurðarson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu.
Axel spilaði mikilvægt hlutverk í Gróttuliðinu síðasta sumar en þá spilaði hann 13 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim þrjú mörk. Öflugur sóknarmaður sem mikils er vænst af.