Paulo Dybala, leikmaður Juventus, hefur tjáð sig um hvernig er að vera með kórónaveiruna en allir kannast nú við faraldurinn.
Dybala smitaðist nýlega en liðsfélagi hans Daniele Rugani var sá fyrsti til að veikjast í ítölsku deildinni.
Dybala segir að það sé ekkert grín að takast á við veiruna en hann sjálfur gat varlað andað um leið og einkennin fóru að sjást.
,,Ég gat varla andað. Ég gat ekki gert neitt eftir bara fimm mínútur,“ sagði Dybala.
,,Mín einkenni voru mjög alvarleg en mér líður mun betur í dag.“