Kári Stefánsson, forstjóri hjá Íslenskri Erfðagreiningu segir að kórónuveiran hafi borist til Íslands frá fleiri löndum en áður var talið. Rúv.is segir frá.
Fyrirtæki Kára hefur skimað fyrir veirunni hér á landi en yfir 500 Íslendingar eru sýktir af COVID-19 veirunni.
Nú kemur fram að í skimum Kára að líklega hafi sjö Íslendingar smitast á knattspyrnuleik í Englandi.
„Sumar komu frá Austurríki og það er önnur stökkbreyting sem fylgir þeim sem smituðust á Ítalíu. Svo er þriðja stökkbreytingin sem finnst í fólki sem smitaðist á Englandi. Sjö einstaklingar virðast til að mynda hafa smitast á fótboltaleik á Englandi,“ segir Kári á RÚV.
Enginn fótbolti er spilaður á Englandi í dag og er búið að setja á útgöngubann í Englandi.