fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Segir að Jón Jónsson geti orðið snælduvitlaus: „Dauðir hlutir fengið að finna fyrir því“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. mars 2020 08:53

Jón Jónsson tónlistarmaður

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Jónsson, einn vinsælasti tónlistarmaður landsins átti flottan feril sem knattspyrnumaður með FH. Jón var ólseigur bakvörður, gat hlaupið mikið og gaf aldrei tommu eftir.

Sportið í kvöld á Stöð2 Sport og rifjaði upp leikinn þar sem Stjarnan varð Íslandsmeistari með 2-1 sigri á FH, árið 2014. Um er að ræða einn frægasta leik sem hefur verið á Íslandi.

Jón varð aðeins reiður í leiknum þegar Stjarnan fékk vítaspyrnu undir lok leiksins og tryggði sér sigur í deildinni. ,,Ég hef einu sinni séð Jón Jónsson virkilega reiðan, það var þegar vítaspyrnan var dæmd,“ sagði Ríkharð Óskar Guðnason, sem stýrði þættinum Sportið í kvöld á Stöð2 Sport, þegar leikurinn var gerður upp í vikunni.

Davíð Þór Viðarsson, fyrrum fyrirliði FH sagði að Ríkharð hefði ekki séð allt. Að þessi ljúfi maður geti orðið alveg snælduvitlaus.

,,Þú greinilega hittir á hann þegar hann er í góðu skapi, ég hef séð hann snælduvitlausan oftar en einu sinni. Ég verð að taka það fram, á mjög eðlilegan hátt,“ sagði Davíð léttur í lund en hann og Jón eru frændur.

,,Hann er mikill keppnismaður, það fer ekki vel í hann að tapa. Stangir, veggir og dauðir hlutir fengið að finna fyrir því. Það er ágætt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Beitir Ólafsson úr KR í HK

Beitir Ólafsson úr KR í HK
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar
433Sport
Í gær

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði