Eins og flestir vita er ástandið hér á landi sem og annars staðar ansi erfitt þessa dagana.
Kórónaveiran er að gera fólki erfitt fyrir en mörgþúsund smit hafa fundist víðsvegar í Evrópu.
Það er engin knattspyrna á dagskrá í helstu deildum Evrópu á næstunni og halda flestir sig heima.
Það er þó æft hjá flestum félögum og þar á meðal annars hjá Breiðabliki í Pepsi Max-deild karla.
Blikar birtu myndband á heimasíðu sinni í dag þar sem farið er yfir hvernig félagið hefur tæklað þessa erfiðu stöðu.
Myndbandið má sjá hér.