Eins og knattspyrnuáhugafólki hérlendis er kunnugt um er undirbúningur umspilsleiks A landsliðs karla við Rúmeníu um möguleikann á sæti í lokakeppni EM 2020 í fullum gangi. Það er að mörgu að hyggja í undirbúningnum, ekki síst á leikfletinum sjálfum. Viðureignin fer fram fimmtudaginn 26. mars næstkomandi og er uppselt á leikinn.
Liðið sem vinnur sigur mætir annað hvort Búlgaríu eða Ungverjalandi í úrslitaleik 31. mars.
Sett hefur verið saman stutt myndband sem sýnir hvernig síðustu sjö dagar hafa gengið fyrir sig. Smellið hér að neðan til að skoða myndbandið.