Daníel Hafsteinsson hefur skrifað undir hjá FH og mun leika með liðinu í ár, hann kemur á láni frá Helsingborg.
Sænska félagið keypti þennan öfluga miðjumann síðasta sumar frá KA, hann hefur hins vegar ekki náð að festa sig í sessi.
Valur sem vildi fá Daníel síðasta sumar vildi ekki fá Daníel í sínar raðir núna, samkvæmt heimildum 433.is. Þá ku Stjarnan hafa reynt að fá Daníel að láni en hann kaus að fara í FH.
Daníel er fæddur árið 1999 og fagnar 21 árs afmæli sínu í lok þessa árs, hann hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands og ætti að styrkja FH töluvert.
Við bjóðum Daníel Hafsteinsson velkominn.#ViðerumFH pic.twitter.com/smOv9VwLJi
— FHingar (@fhingar) March 11, 2020