Jón Dagur Þorsteinsson kom við sögu hjá liði AGF í kvöld í leik í dönsku úrvalsdeildinni.
Jón Dagur fékk ekki að byrja leikinn hjá AGF en hann kom inná sem varamaður þegar sjö mínútur voru eftir.
Það var ekki boðið upp á stórkostlegan leik en honum lauk með markalausu jafntefli. AGF lék við Hobro.
AGF situr í þriðja sæti deildarinnar en er 16 stigum á eftir toppliði Midtjylland.