Takumi Minamino, nýr leikmaður Liverpool, ræddi við Shinji Kagawa áður en hann samdi við félagið.
Minamino samdi við Liverpool í janúar en hann talaði við landa sinn sem var áður á mála hjá Manchester United.
,,Ég ræddi við Shinji Kagawa þar sem hann spilaði fyrir Jurgen Klopp hjá Dortmund,“ sagði Minamino.
,,Klopp ræddi við mig um Shinji og Shinji talaði um Klopp. Ég gat séð að samband þeirra var mjög gott.“
,,Shinji sagði að Klopp væri einn besti stjóri heims og nú er ég hér að vinna fyrir hann og segi það sama.“