Íslendingaliðin eru úr leik í Evrópudeildinni en nokkrir leikir fóru fram klukkan 17:55 í dag.
Arnór Ingvi Traustason var fjarri góðu gamni hjá Malmö sem mætti Wolfsburg á heimavelli.
Arnór er meiddur og spilaði ekki í slæmu 3-0 tapi Malmö. Wolfsburg vann fyrri leikinn aðeins 2-1 á heimavelli.
Björn Bergmann Sigurðarson var á sama tíma ekki með APOEL sem tapaði 1-0 gegn Basel og samanlagt 4-0.
Albert Guðmundsson var þá að lokum ekki með AZ Alkmaar sem tapaði 2-0 gegn LASK Linz og kveður einnig keppnina.