Enska úrvalsdeildin hefur ákveðið að setja á laggirnar, frægðarhöll. Fyrstu tveir leikmennirnir verða teknir inn í hana í næsta mánuði.
Fram kemur að þetta sé æðsta viðurkenning sem leikmaður getur hlotið frá deildinni.
Frægðarhöll er vel þekkt dæmi í íþróttaheiminum, hún er hér á Íslandi en ÍSI sér um hana.
Merkustu leikmenn deildarinnar komast inn í þessa höll en eins og fyrr segir verða frystu menn teknir inn um miðjan mars.
Ætla má að Ryan Giggs og fleiri verði fljótir að komast inn í höllina