Manchester City varð fyrir áfalli í kvöld er liðið mætti Real Madrid í Meistaradeildinni.
Staðan er markalaus á Santiago Bernabeu þessa stundina en búið er að flauta fyrri hálfleikinn af.
Aymeric Laporte, varnarmaður liðsins, þurfti að fara af velli eftir aðeins 33 mínútur á Spáni.
Það eru ekki góðar fréttir fyrir City en Laporte sneri til baka eftir erfið meiðsli fyrir fjórum leikjum síðan.
Það þurfti ekki að bera Laporte af velli en hann haltraði útaf og er ekki ljóst hversu illa meiddur hann er.