Bruno Fernandes var valinn maður leiksins í dag er lið Manchester United mætti Watford á Old Trafford.
Fernandes var frábær fyrir United sem vann 3-0 heimasigur og skoraði hann bæði og lagði upp.
Fernandes kom aðeins til United í janúar en hann var áður hjá portúgalska félaginu Sporting.
Portúgalinn fékk 9,21 í einkunn hjá tölfræðisíðunni WhoScores sem gefur einkunnir úr öllum bestu deildum Evrópu.
Ekki einn leikmaður United hefur fengið eins góða einkunn á öllu tímabilinu til þessa.
Bruno Fernandes’ rating of 9.21 vs Watford was the best of any Manchester United player in a Premier League match this season pic.twitter.com/Qgn8myhz3a
— WhoScored.com (@WhoScored) 23 February 2020