Dean Smith, stjóri Aston Villa, hefur tjáð sig um sögusagnir sem fóru af stað eftir leik við Southampton í dag.
Villa heimsótti Southampton í ensku úrvalsdeildinni og þurfti að sætta sig við 2-0 tap.
Eftir leik var greint frá því að Smith og aðstoðarmaður hans John Terry hafi slegist í leikmannagöngunum.
Sagt var að starsfólk Southampton hafi þurft að stöðva rifrildið og að mikill hiti hafi verið í mannskapnum.
Það er hins vegar algjört bull samkvæmt Smith sem var spurður út í málið á blaðamannafundi.
,,Þetta er algjört kjaftæði,“ sagði Smith og sagðist ekki hafa hitt Terry beint eftir leik.
Dean Smith and John Terry were just involved in a huge bust up, in the Southampton tunnel. The row threatened to get physical until the two men were pulled apart, by Southampton officials! 😳👀
[Mark Regan – BBC WM]
— Villa Chat (@villachatdotcom) 22 February 2020