Það var mjög skemmtilegur leikur á dagskrá í Lengjubikarnum í dag en leikið var á Origo vellinum.
Valur fékk þá Fjölni í heimsókn í 2. umferð bikarsins en leiknum lauk með 2-3 útisigri Fjölnis.
Tvö rauð spjöld fóru á loft í leiknum en þeir Patrick Pederson og Hans Viktor Guðmundsson fengu þau undir lok leiksins.
Á sama tíma áttust við Stjarnan og ÍBV en sú viðureign fór fram á Samsung-vellinum.
Annar útisigur var á dagskrá í Garðabæ en ÍBV hafði betur með tveimur mörkum gegn einu.
HK og Þróttur áttust þá einnig við en þeim leik lauk með 2-0 sigri HK í Kórnum.
Valur 2-3 Fjölnir
0-1 Hallvarður Óskar Sigurðarson
0-2 Guðmundur Karl Guðmundsson
1-2 Birkir Már Sævarsson
1-3 Hallvarður Óskar Sigurðarson
2-3 Patrick Pedersen
Stjarnan 1-2 ÍBV
0-1 Guðjón Ernir Hrafnkelsson
1-1 Sölvi Snær Guðbjarnarson
1-2 Víðir Þorvarðarson
HK 2-0 Þróttur R.
1-0 Leifur Andri Leifsson
2-0 Ásgeir Marteinsson