Dietmar Hamann, goðsögn Liverpool, hvetur Timo Werner til að forðast félagið næsta sumar.
Werner er líklega á förum frá RB Lepzig í Þýskalandi en hann er á óskalista margra félaga í Evrópu.
Hamann segir Werner að semja frekar við önnur ensk lið þar sem hann kæmist ekki endilega í byrjunarlið Liverpool.
,,Ef enginn af þremur framherjum Liverpool meiðist þá fær hann ekki að spila og það er ekki það sem hann vill,“ sagði Hamann.
,,Liverpool er toppurinn en að mínu mati myndi hann henta Manchester United eða Chelsea betur.“