Það fór fram einn leikur í ensku úrvalsdeildinni í gær er Manchester City og West Ham áttust við. Um var að ræða leik sem var áður frestað vegna veðurs en hann fór fram á heimavelli City.
Það voru meistararnir sem unnu nokkuð þægilegan sigur með mörkum frá Rodri og Kevin de Bruyne. City er enn 22 stigum frá toppliði Liverpool þegar 26 umferðir eru búnar í deildinni.
Kun Aguero tókst ekki að skora í leiknum en varnarmenn West Ham gerðu allt til þess að stoppa hann.
Angelo Ogbonna, varnarmaður West Ham greip meira segja til þeirra ráða, að grípa um skaufa Aguero.
Myndir af því má sjá hér að neðan.