Leicester er byrjað að ræða við umboðsmann Adam Lallana um að fá enska miðjumanninn í sínar raðir í sumar.
Lallana er samningslaus í sumar en Brendan Rodgers þekkir hann vel eftir þeirra samstarf á Anfield.
Rodgers keypti Lallana til Liverpool frá Southampton. Meiðsli hafa hindrað framgöngu hans á Anfield.
Lallana er 31 árs gamall en hann gæti nýst Leicester vel, sérstaklega af James Maddison fer frá félaginu. Maddison er ofarlega á óskalista Manchester United í sumar.
Lallana má semja við erlent félag þessa dagana en Leicester þyrfti leyfi frá Liverpool til að klára svona mál núna.