Það gengur ekkert alltof vel hjá Diego Maradona í starfi hjá Gimnasia La Plata í Argentínu, liðið er að berjast við falldrauginn í efstu deild í Argentínu.
Maradona hefur í mörg ár barist við fíkniefnadjöfulinn og virðist hann enn vera í slíkri baráttu. Því er haldið fram að Maradona hafi í leik um helgina fengið sér línu af kókaíni, í miðjum leik.
Það vöknuðu upp miklar grunsemdir þegar aðstoðarmaður mætti með lítinn poka, með hvítu dufti í til Maradona.
Aðstoðarmenn hans stóðu svo upp til þess að myndavélin næði ekki skoti af Maradona. Dæmi hver fyrir sig en atvikið má sjá hér að neðan.
the technical staff covering Maradona from the cameras while he gets a small bag of coke. Dfkm pic.twitter.com/Oh33zzufr6
— Kevin (@BraziIianTr3nt) February 18, 2020