,,Stuðningsmenn okkar geta verið öryggir með það að þessar ásakanir eru rangar,“ sagði Ferran Soriano, stjórnarformaður Manchester City um dóm UEFA, City hefur verið dæmt í tveggja ára bann frá keppnum UEFA.
Málinu hefur verið áfrýjað og vonast City eftir endanlegri niðurstöðu fyrir sumarið. City er sakað um að hafa brotið fjárhagsreglur UEFA, félagið segir UEFA aldrei hafa skoðað málið hlutlaust. UEFA hafi lagt af stað í þessa rannsókn til að dæma félagið.
,,Við munum gera allt til þess að sanna hvað er satt og rétt í þessu máli.“
,,Eigandinn hefur ekki sett inn peninga í félagið án þess að það hafi komið fram,“ sagði Soriano en eigandinn er sakaður um að dæla inn peningum í City í gegnum fyrirtæki sem bróðir hans á.
,,Við erum félag sem er rekið með hagnaði, við höfum engar skuldir. Það er búið að skoða reikninga okkar oft, af yfirvöldum, regluverkinu og þeim sem hafa keypt í félaginu.“
,,Við viljum að málinu sé lokið sem fyrst, að það sé á enda fyrir sumarið. Fram að því höldum við áfram.“