Liverpool tapaði sínum fyrsta leik í langan tíma í gær er liðið mætti Atletico Madrid í Meistaradeildinni. Um var að ræða fyrri leik liðanna af tveimur í 16-liða úrslitum en spilað var á heimavelli Atletico, Wanda Metropolitano.
Aðeins eitt mark var skorað í leik gærkvöldsins en það gerði Saul fyrir Atletico eftir fjórar mínútur. Liverpool var 68 prósent með boltann í leiknum en átti ekki skot á mark Atletico allar 90 mínúturnar.
Jamie Carragher segir að eina vandamál Liverpool hafi opinberast í þessum leik. ,,Liverpool lét þetta ekki pirra sig en liðið skapaði enginn færi,“ sagði Carragher.
,,Liðið er ekki mjög skapandi og sérstaklega á miðsvæðinu, það hefur alltaf verið vandamál liðsins.“
,,Liðið hélt ró sinni og missti ekki hausinn. Liðið fékk ekki á sig annað mark sem er mikilvægt.“