Beppe Marotta, stjórnarformaður Inter Milan, virðist hafa útilokað brottför framherjans Lautaro Martinez.
Martinez er orðaður við Barcelona þessa dagana sem arftaki Luis Suarez sem er kominn á senni árin.
Marotta hefur þó engan áhuga á að losna við Martinez sem er aðeins 22 ára gamall.
,,Sögusagnirnar um Lautaro? Hann er ungur og er að bæta sig. Hann hefur aðeins áhuga á að klæðast glæsilegri treyju Inter,“ sagði Marotta.
,,Þetta félag er ekki öfundsjúkt út í önnur. Leikmenn geta aðeins farið héðan ef þeir biðja um sölu.„