Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United gat ekki fullyrt hvort Paul Pogba yrði leikfær á þessari leiktíð. Ef Pogba nær ekki heilsu er nánast öruggt að hann hefur spilað sinn síðata leik fyrir félagið.
Pogba fór í aðgerð á ökkla í upphafi árs og hefur ekki náð heilsu, hann hefur verið í Dubai í endurhæfingu síðustu daga.
Pogba vill fara frá United og fer að öllum líkindum í sumar en óvíst er hvort hann geti spilað meira á þessari leiktíð.
,,Ég vildi ég gæti sagt hvenær hann er klár, ef hann nær heilsu þá er hann nógu góður fyrir liðið. Ég vona að Paul vilji ólmur spila aftur,“ sagði Solskjær og svör hans nokkuð óljós.
Pogba hefur spilað átta leiki á þessu tímabili og lék síðast á öðrum degi jóla en þessi 26 ára miðjumaður ku vilja fara aftur til Juventus.