Steven Gerrard, goðsögn Liverpool, hefur áhuga á að vita hvort Manchester City missi deildarmeistaratitilinn sem liðið vann árið 2014.
City endaði þá fimm stigum á undan Liverpool er Gerrard var nálægt því að vinna deildina í fyrsta sinn.
City gæti átt von á refsingu frá ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa brotið fjárlög UEFA.
,,Ég sá þetta sjálfur, við þurfum að bíða og sjá. Frá sjónarhorni UEFA á er þetta augljóslega hörð refsing,“ sagði Gerrard.
,,Ég er viss um að þeir áfrýji þessu og við sjáum hver niðurstaðan verður. Svo sjáum við hvort enska úrvalsdeildin bregðist við.“
,,Ég er mjög spenntur að sjá hver niðurstaðan verður. Þar til að hún er klár þá mun ég ekki tjá mig um en ég er áhugasamur og ástæðan er augljós.“