Mino Raiola, umboðsmaður Paul Pogba, viðurkennir að hann hafi verið í sambandi við fyrrum lið leikmannsins, Juventus.
Pogba er reglulega oraðaður við sitt fyrrum félag og er Raiola í reglulegu sambandi við ítalska stórliðið.
,,Hann hefur aldrei hætt að brosa, augljóslega þá fer frábær leikmaður ekki til Manchester United til að keppa ekki í Meistaradeildinni eða deildinni,“ sagði Raiola.
,,Það væri rangt hjá mér að segja að Paul vilji ekki spila í hæsta gæðaflokki. Pogba gerir sitt besta og við sjáum til í lok tímabils hvort hann verði þarna áfram eða ekki.“
,,Ég ræði við Pavel Nedved og Juventus um ýmsa hluti og Pogba og aðra leikmenn þar á meðal.“