Pep Guardiola, stjóri Manchester City, er ekki á förum frá félaginu næsta sumar.
The Mirror fullyrðir þetta í kvöld en talað er um að Guardiola gæti verið að kveðja eftir leiktíðina.
Aðal ástæðan er Meistaradeildarbann City en liðið var í gær dæmt í tveggja ára bann af UEFA.
Mirror segir þó að Guardiola ætli að virða samning sinn hjá City sem rennur út árið 2021.
City mun reyna að áfrýja banni UEFA en hvort það takist verður að koma í ljós á næstu mánuðum.