Það fór fram Íslendingaslagur í Þýskalandi í dag er lið Darmstadt og Sandhausen áttust við.
Um var að ræða leik í þýsku B-deildinni en Guðlaugur Victor Pálsson leikur með Darmstadt og Rúrik Gíslason með Sandhausen.
Guðlaugur var í byrjunarliði heimamanna og spilaði allan leikinn í 1-0 sigri. Immanuel Höhn gerði eina mark leiksins.
Rúrik kom inná sem varamaður hjá Sandhausen á 77. mínútu en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn.
Darmstadt spilaði manni færri frá 62. mínútu eftir rautt spjald markaskorarans.