Norwich 0-1 Liverpool
0-1 Sadio Mane(78′)
Liverpool er nú með 25 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir leik við Norwich í kvöld.
Liverpool þurfti að hafa fyrir sigrinum á Carrow Road en aðeins eitt mark var skorað.
Það var varamaðurinn Sadio Mane sem skoraði mark Liverpool en hann gerði það á 78. mínútu.
Mane byrjaði leikinn á bekknum en kom inná á 60. mínútu og tryggði svo sigur.
Liverpool er með 76 stig á toppnum, 25 stigum á undan Manchester City sem á leik til góða.