Jose Mourinho, stjóri Tottenham, neitar því að hann hafi ekki gefið Danny Rose sanngjarnt tækifæri með liðinu.
Rose gaf það út nýlega að hann hafi ekki fengið tækifæri undir Mourinho og ákvað því að semja við Newcastle í janúar.
,,Þegar Ben Davies var meiddur þá var það tækifæri fyrir aðra til að spila,“ sagði Mourinho.
,,Japhet Tanganga fékk tækifæri lífsins og hann hefur nú þegar spilað sex eða sjö leiki með aðalliðinu.“
,,Ryan Sessegnon komst hægt inn í þetta. Hann hefur spilað meira en hann er vanur að gera.“
,,Jafnvel fyrir Danny Rose þá fékk hann tækifæri í þremur mikilvægum leikjum. Hann spilaði gegn Liverpool, Olympiakos og Bayern Munchen.“