Liverpool er nú með 25 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir leik við Norwich í kvöld.
Liverpool þurfti að hafa fyrir sigrinum á Carrow Road en aðeins eitt mark var skorað.
Það var varamaðurinn Sadio Mane sem skoraði mark Liverpool en hann gerði það á 78. mínútu.
Mane byrjaði leikinn á bekknum en kom inná á 60. mínútu og tryggði svo sigur.
Liverpool er með 76 stig á toppnum, 25 stigum á undan Manchester City sem á leik til góða.
Liverpool er nú búið að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni fyrir næstu leiktíð þrátt fyrir að hafa aðeins spilað 26 leiki.
Liverpool er 35 stigum á undan Chelsea sem situr í 4. sæti deildarinnar.
Liverpool have already qualified for next year’s Champions League.
It’s February. pic.twitter.com/vuOHxbU5zn
— B/R Football (@brfootball) 15 February 2020