Leikmenn í ensku úrvalsdeildinni óttast þjófa og ræningja í Dubai og hafa í auknum mæli verið að kaupa sér þjónustu öryggisvarða.
Enskir knattspyrnumenn hafa verið tíðir gestir í Dubai síðustu daga á meðan vetrarfrí hefur verið í gangi í ensku úrvalsdeildinni.
Marcus Rashford, Paul Pogba og fleiri leikmenn hafa keypt sér slíka þjónustu, þeir óttast öryggi sitt á þessum vinsæla ferðamannastað.
Þjónustan kostar fleiri hundruð þúsund á degi hverjum, sem þó lítið mál fyrir sterk efnaða knattspyrnumenn.
Dubai hefur lengi vel verið einn heitasti staðurinn fyrir ríka og fræga fólkið að heimsækja.