Það er óhætt að fullyrða það að það sé nóg til hjá knattspyrnumanninum Lionel Messi sem spilar með Barcelona.
Messi hefur lengi verið talinn einn besti leikmaður heims og af mörgum einfaldlega sá besti.
Messi er með stórkostlegt safn heima hjá sér þar sem má sjá treyjur sem hann hefur safnað á ferlinum.
Argentínumaðurinn hefur verið duglegur að skipta á treyjum við leikmenn í gegnum tíðina.
Safnið hans Messi er stærra en flest söfn og má sjá treyjur hjá hinum ýmsu leikmönnum.
Þetta má sjá hér.