Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Millwall í kvöld sem mætti Fulham í Championship-deildinni.
Jón Daði spilaði allan leikinn fyrir Millwall og skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli.
Mark landsliðsmannsins átti hins vegar aldrei að standa en hann var vel rangstæður.
Það fékk þó að standa en Jón Daði skoraði markið á áttundu mínútu eftir mark Aleksandar Mitrovic á þriðju.
Millwall fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora úr henni.