fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Staðfest að Jón Þór lætur af störfum – „Mistök sem ég tek fulla ábyrgð á“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 8. desember 2020 16:02

Jón Þór þegar hann var ráðinn til starfa í lok árs 2018.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KSÍ og Jón Þór Hauksson hafa komist að samkomulagi um að Jón Þór láti af störfum sem þjálfari A landsliðs kvenna að hans ósk. Undir stjórn Jóns Þórs náði liðið því markmiði að tryggja sér sæti í lokakeppni EM 2022.

Engu að síður telja KSÍ og Jón Þór það vera rétt skref að hann stígi til hliðar á þessum tímapunkti, með hagsmuni landsliðsins að leiðarljósi. KSÍ þakkar Jóni Þór fyrir hans framlag til árangursins og óskar honum velfarnaðar í þjálfarastörfum í framtíðinni.

Þessi niðurstaða kemur í málið eftir atvik sem kom upp í Ungverjalandi í síðustu viku. Atvik kom upp í fögnuði liðsins í Ungverjalandi í síðustu viku. Þjálfarinn, starfsfólk KSÍ og leikmenn voru þá að sletta úr klaufunum eftir að stelpurnar höfðu tryggt sig inn á Evrópumótið í Englandi.

Jón Þór segir í yfirlýsingu vegna málsins. „Ég hef alltaf lagt áherslu á að koma hreint og beint fram við þá leikmenn sem ég hef þjálfað, að hrósa og gagnrýna með það að markmiði að hjálpa þeim að gera enn betur og styrkja þannig liðið. Slík samtöl eiga hins vegar ekki heima í fögnuði sem þessum og alls ekki undir áhrifum áfengis. Þarna brást ég sem þjálfari liðsins og hefði ekki átt að ræða frammistöðu og þjálfun einstakra leikmanna undir þessum kringumstæðum. Það voru mistök sem ég tek fulla ábyrgð á og hef beðið liðið og einstaka leikmenn afsökunar,“ skrifar Jón Þór.

Hann kveðst hafa rætt við leikmenn vegna málsins og skrifar. „Undanfarna daga hafa samtöl mín við leikmenn liðsins leitt mig að þeirri niðurstöðu að erfitt verði að endurheimta nauðsynlegt traust á milli mín sem þjálfara og einstakra leikmanna. Liðið og árangur þess er það sem skiptir öllu máli og nú stendur það frammi fyrir mikilvægum undirbúningi fyrir EM. Við slíkar aðstæður er skynsamlegast fyrir alla aðila að nýr þjálfari taki við og hefji undirbúning fyrir þetta mikilvæga mót. Ég hef því óskað eftir og gert samkomulag við KSÍ um að láta af störfum sem landsliðsþjálfari. Ég óska liðinu og leikmönnum þess velfarnaðar og trúi því að liðið geti náð góðum árangri á EM.

Yfirlýsing Jóns Þórs vegna starfsloka:
Með sigri á Ungverjalandi náði íslenska kvennalandsliðið því markmiði sínu að tryggja sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins 2022. Ég er stoltur af því og þakklátur fyrir að hafa komið að þessum góða árangri sem þjálfari liðsins síðustu tvö ár.

Efti sigurinn á Ungverjalandi var EM-sætinu fagnað af liðinu, starfsmönnum og fulltrúum KSÍ. Við þetta tilefni var boðið upp á áfengi.

Ég hef alltaf lagt áherslu á að koma hreint og beint fram við þá leikmenn sem ég hef þjálfað, að hrósa og gagnrýna með það að markmiði að hjálpa þeim að gera enn betur og styrkja þannig liðið. Slík samtöl eiga hins vegar ekki heima í fögnuði sem þessum og alls ekki undir áhrifum áfengis. Þarna brást ég sem þjálfari liðsins og hefði ekki átt að ræða frammistöðu og þjálfun einstakra leikmanna undir þessum kringumstæðum. Það voru mistök sem ég tek fulla ábyrgð á og hef beðið liðið og einstaka leikmenn afsökunar.

Undanfarna daga hafa samtöl mín við leikmenn liðsins leitt mig að þeirri niðurstöðu að erfitt verði að endurheimta nauðsynlegt traust á milli mín sem þjálfara og einstakra leikmanna. Liðið og árangur þess er það sem skiptir öllu máli og nú stendur það frammi fyrir mikilvægum undirbúningi fyrir EM. Við slíkar aðstæður er skynsamlegast fyrir alla aðila að nýr þjálfari taki við og hefji undirbúning fyrir þetta mikilvæga mót. Ég hef því óskað eftir og gert samkomulag við KSÍ um að láta af störfum sem landsliðsþjálfari. Ég óska liðinu og leikmönnum þess velfarnaðar og trúi því að liðið geti náð góðum árangri á EM.

Jón Þór Hauksson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði

Búist við að fjöldinn allur komi saman úr skápnum í næsta mánuði
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

KSÍ segir ráðningu á framkvæmdarstjóra í góðum farvegi

KSÍ segir ráðningu á framkvæmdarstjóra í góðum farvegi
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Selfoss borgar stóran hluta af myndarlegum launapakka Gary Martin

Selfoss borgar stóran hluta af myndarlegum launapakka Gary Martin
433Sport
Í gær

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Í gær

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði