Mikael Neville Anderson, leikmaður Midtjylland, var í byrjunarliði liðsins sem vann 0-2 sigur á Vejle í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Erik Sviatchenko kom Midtjylland yfir með marki í 45. mínútu.
Það var síðan fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar, Alexander Scholz sem innsiglaði 0-2 sigur Midtjylland með marki úr vítaspyrnu á 67. mínútu.
Mikel spilaði 89. mínútur í leiknum.
Midtjylland er í 1. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 11. leiki.